top of page

Sterkari OG í betra formi en fyrir 10 árum!

ÁRANGUR

Karbon Kristján.png

“Í stuttu máli sagt hef ég bæði aukið styrk og bætt þol umtalsvert sl. fjóra mánuði, á sama tíma og passað er upp á að hreyfigeta/liðleiki batni”

Kristján Þór

"Eftir að hafa æft Crossfit í mörg ár og þróað með mér smáveigis meiðsli sem poppa upp reglulega þá hefur prógrammið hjálpað mér að stíga til baka með því að leggja áheyrslu á grunnstyrk og liðleika til að koma í veg fyrir meiðsl"

Kristín Jakobsdóttir

Copy of Karbon Kristján.png

"Hvern hefði grunað að eftir mörg ár af æfingum, keppnum og árangri að núna 42 ára þá er ég að bæta mig í ÖLLU, betri að lyfta, betri að hlaupa, betri í fimleikum, bara heilt yfir betri og er enþá að verða betri."

Kristín Sif

Karbon árangur Kristín Sif.png
6E736B31-960F-4BDB-9895-D87B3C389869_1_105_c.jpeg

Ég byrjaði að þjálfa árið 2017, upphaflega bara til að geta æft meira sjálfur, en snemma á þeirri vegferð áttaði ég mig á því að þjálfun er mín köllun.

Árið 2018 þurfi ég að velja á milli þess að keppa á stóru alþjóðlegu móti eða hjálpa unglingunum sem ég var að þjálfa í keppni. Um leið og ég þurfti að velja á milli þess að vera þjálfari eða keppandi þá áttaði ég mig því hvað skipti mig meira máli og ég hef ekki horft til baka síðan. 

Það sem mér finnst skemmtilegast við að vera þjálfari er að leysa vandamál, að skilja afhverju einhver er föst/fastur, hvað er að halda aftur af henni/honum, og finna bestu, hröðustu og skilvirkustu leiðina til að koma henni/honum á næsta level.

Í dag er ég CrossFit Level 2 og IWF Level 2 þjálfari, og hef þjálfað fólk á öllum stigum, allt frá byrjendum, fólki á eftirlaunaaldri, upp í atvinnu íþróttafólk sem keppir á hæsta stigi.

Sjálfur náði ég 227kg í hnébeygju og hljóp mílu undir 5 mínútum á sama degi, ekki bara til að monnta mig:) heldur til að sína sjálfum mér og öðrum að það þarf ekki að velja á milli þess að byggja styrk eða þol. Það er hægt að gera bæði. Það er akkúrat þessi hugsun sem liggur á bak við Æfingaklúbbinn.

Ég sérhæfi mig í fólki 35 ára og eldri sem er alvara með æfingar sem vill ekki bara "halda sér gangandi" heldur raunverulega verða sterkara og í betra formi en það var fyrir 10 árum. Ekki með einhverju prógrammi sem er hannað fyrir tvítuga bodybuildera, heldur prógram sem virkar með líkamanum þínum, ekki á móti honum.

Coach Eggert

Um mig

bottom of page